jæja jæjaÖsp Jóns.
kjellingin komin heim og hversdagslífið tekið við. NYC var auðvitað bara frábær í alla staði, passlega mikið af góðu veðri, smá sletta af rigningu, fullt af góðum mat, mikið að góðum félagsskap og pínu pínu kíkt í búðir (hehe)Við fengum þennan fína leiðsögumann um NY, hana Þórdísi skvísu NY búa og David hennar kærasta. Með þeim sáum við fullt af skemmtilegum stöðum, veitingar og kokteilbörum
Mæli sérstaklega með Black Velvet fyrir þá sem eiga leið um NY borg
Svo fer maður bara að leggja í púkk fyrir skemmtilega stelpuferð, veit samt ekki hvort ég þori með Lísu...það er stórhættulegt að fara með henni í búðir!Haha
En nú er ég farin að telja niður í sumarfríið mitt sem er eftir 3 vikur, og svo auðvitað þegar við famelían ætlum í 'Asbyrgi til Kollu og co, get ekki beðið að komast í sveitarsælu.
Fleet Week!!Ösp Jóns.
Haldiði ekki að það sé bara Fleet Week í NYC og ég er að fara! 'IHAAAAAAHaldiði að kallinum eigi eftir að líða ílla ef ég glápi??
Köben var snilld, dýr en frábær. Hótelið það það smartasta sem ég hef gist á http://www.copenhagenisland.dk/forside/
Held að það sé bara svipað að vera í Köben og í Reykjavík matar og drykkjarlega séð, svo er HogM alltaf til staðar til að dempa verðið
'Arshátíðin var haldin í gömlu klaustri, Sankt Gertruds Kloster, sem minnti á völundarhús svo stórt var það, með mörgum krókum og kimum. Mjög fallegt. Það var engin loftræsting svo að það voru flestir duglegir í að teiga drykkina og var orðið mikið stuð um eitt þegar við héldum að staðnum og rölltum áleiðis down town. Þar skelltum við okkur að sjálfsögðu í svona hjólavagn (snilld fyrir konur í háum hælum) og brunuðum beint á Sams bar þar sem karíókí er aðalmálið og OMG hvað var gaman. Auðvitað tók kallinn einn slagara, Roxanne með go-go píum og alles. Haha
jæja en mikið var þetta gaman, vildi að ég kynni að setja inn myndir, á nokkrar góðar
NY eftir 5..
get kennt sjálfri mér um...Ösp Jóns.
hvað ég vaknaði friggin snemma í morgun, já mín ákvað vegna þess að góð veðurspá var fyrir daginn í dag að skella í eina þvottavél á timer, semsagt hún var að vinda klukkan 6 í morgun með þvílíkum látum að allir vöknuðu í húsinu...mikið langaði mér að rota sjálfa mig fyrir þessa líka "fínu" hugmynd....URRRRGreini ég einhverja öfund hjá mínu dyggu lesendum um fyrirhugaðar útlandaferðir mínar???
Þetta er náttúrulega meingallað blogg, kann ekki að setja inn myndir af skæslegum karlmönnum, því miður, það mundi skemmta mér jafn mikið og Hildi
'Eg er að sjálfsögðu farin að telja niður dagana í Köben ferðina (...5) og NYC (...14) og verður stefnan tekin beínt í HogM en ekki hvað.
Svo vil ég segja þeim sem hafa ekki séð mig á msn í marga daga, að gamla netfangið mitt dó snögglega og er það nýja asparogn@hotmail.com
þar hafiði það mína bloggfærslu fyrir Maí
Adios, má ekki vera að þessu, er að fara til úglanda
alltaf blönk um mánaðarmót...Ösp Jóns.
einhver sem les þetta blogg sem hefur rosa skemmtilega vinnu að bjóða mér með fullt af peningum í laun...ekki, jæja það mátti reyna.
Jæja þá er maður farin að telja niður í Köbenferð og mesta spenninginn NYC ferð, get ekki beðið!!!! Setjast reglulega á kaffihús í G'OÐA veðrinu og drekka öl eða bara cosmo, kíkja í búðir, setjast í fallega garða með nesti og drykk, versla, borða fullt af góðum mat, þurfa EKKI að hlusta á grenjandi krakka......heaven
Er heima að ná úr mér "skítnum" eins og ég kalla það þegar ég er stífluð með beinverki en ekki beint hita, Sex And The City í tækinu, hvað annað. Elska Carrie og Mr, BIG
Adrian er auli, þið fattið það þegar þið horfið á seríuna í annað sinn
Já svo er ég búin að kaupa 3 ferðina, en það er til Helsinki í haust, með Degi, svaka stuð!! Já brjálað að gera hjá láglaunastéttarstarfsmanninum.
Svo er næsta ferð á döfunni, gæti verið gaman um næstu jól, Den Haag, mikið er gaman að þekkja fullt af fólki í útlöndum
jæja best að fara að einbeita mér að S.A.T.C
og allveg 12 dögum of snemma, geri aðrir betur
Ikea...Ösp Jóns.
snilldin ein, maður fer þarna fær fullt af sniðugum hugmyndum sem alls ekki kosta mikinn pening og svo fer maður og bíður allri famelíunni upp á sænskar kjötbollur í brúnni með títiberjasultu fyrir heilas 1000 kr! Það er að renna upp fyrir Halldóri hvað hún er mikil snilld, YES!!Páskarnir á morgun og nokkur egg bíða upp á hillu, auðvitað nr 6 frá Nóa fyrir mig (og Dóri má narta í) Nokkrir lítrar af mjólk í skápnum, enda ekki oft sem maður hámar í sig súkkulaði og drekkur mjólk í morgunmat....nammi namm
er að gera það upp við mig hvort ég eigi að kíkja í smá heimkomupartý í kvöld....þar sem það er garanterað að ég verð vakin um 7....
virkar ekki mjög spennandi
læt ykkur vita hvernig fer.... eftir ca mánuð hehehehe
ég hef stundum...Ösp Jóns.
velt því fyrir mér hvað verður um ALLAR þessar duddur sem maður kaupir í gegnum tíðina og virðast eiga mjög auðvelt með að hverfa þannig að maður stendur sveittur um miðja nótt með hárið út í loftið, í leit að síðustu duddunni til að geta róað barnið og haldið áfram að sofa.Ætli það sé einhverskonar dudduheimur þar sem þær hverf inní og svo sveima þær um ókomna tíð í dudduheimum.
'Eg er náttúrulega lélegasti bloggari landsins þó víða væri leitað, hef alldrei neitt spennandi að segja frá, það eina sem gefur lífinu lit þessa dagana (fyrir utan börn náttúrulega huhumm;) er náttúrulega helgarferðirnar 2 í lok maí byrjun júní. MEN hvað mér hlakkar til, enda þá pottþétt komið vor og HITI, eitthvað annað en þessi fúli snjór og endalausi kuldi hérna á klakanum....
já kannki ég skelli mér á icelandair.com og pannti mér flug til Heslinki í haust, allt er þegar þrennt er, er það ekki??;)
slasaður maður fær enga hjálpÖsp Jóns.
maður á eiginlega ekki til orð þegar maður heyrir svona lagað
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4338226/2
'Eg var í fimmtugsafmæli hjá tengdamömmu á föstudaginn með þessum manni, Páli sem er giftur systir hennar Gunnu. Svona fór fyrir honum og það er með ólíkindum hvað náungakærleikurinn er stundum floginn út um veður og vind
'Eg ætla að vona að ég eigi aldrei eftir að stóla á aðra við svona aðstæður, það virðast vera meiri líkur á að maður yrði bara látinn deyja frekar en hjálpað
aðeins að monta mig...Ösp Jóns.
þetta er semsagt hótelið sem við verðum á í Köbenhttp://www.copenhagenisland.dk/forsid/
Not BAD!! hehe
jæja fór í heil tvö afmælispartý um helgina, gaman gaman
'A föstudagskvöldið var farið í hálfrar aldar afmælisfögnuð hjá tengdamömmu. Þar var veitt vel að vanda, bæði af fingramat og vínveigum, ekki amarlegt það og ekki var félagsskapurinn af lakari taginu, enda mikið hressleikafólk þarna á ferð.
'A laugardaginn var sko haldið í Kjólapartý a'la 35 ára afmæli Lísu skvísu. Og aftur var ég ekki svikin af veigum, í föstu og fljótandi formi.....ég er enn að hugsa um jarðaberja-mohito-inn og súkkulaðibitakökuna NAMM-ó....slurp slurp
Mikið er gaman að jamma
hehehehehe, jæja þá var það ekki fleira í bili
chao bella
Alpha DogÖsp Jóns.
já mér var boðið í bíó um helgina í tilefni að konudeginum. Þegar í bíóhúsið var komið fékk ég svo herfilegan valkvíða að ég og Dóri í sameiningu völdum eiginlega sístu myndina sem mig langaði að sjá þannig séð, og vissi minns um, nema að my homeboy JT (Justin Timberlake) léki í henni.Salurinn var þéttsetinn af unglingum, aðalega stelpum og nokkrum strákum með stífgelað hár og strípur...
var ekki viss um að það væru góð meðmæli....
En svo byrjaði ræman og alltaf gaman að sjá sæta stráka bera að ofan og sérstaklega my homeboy JT.
Myndin er byggð á sönnum atburðum sem áttu sér stað 1999 og eru um ungan strák, 15 ára gamlan sem var tekin sem gísl af strákagengi vegna þess að eldri hálfbróðir hans skuldaði höfuðpaur gengisins heilar 1200 dollara. Og það ótrúlega er að aðalgæinn er enn að bíða eftir réttarhöldum yfir sér, en þegar ákveðið var að gera þessa mynd var hann á most wanted FBI list, en náðist 2005.
'Eg mæli með þessari, ég er enn mikið að hugsa um þetta og þykir í raun með ólíkindum að nokkuð svona geti átt sér stað en hér er hægt að lesa um the real Alpha dog story http://www.msnbc.msn.com/id/16636250/page/2/
Já og svo er ég bara enþá að fara til Köben og NYC, ekkert breyst;)